Hin vinsælu sumarnámskeið og æfingabúðir Karatefélags Reykjavíkur eru fyrir börn á aldrinum 6-10 ára.
Á námskeiðinu fá börn að kynnast undirstöðuatriðum karateíþróttarinnar, jafnt innan dyra sem utan.
Námskeiðin fara fram í aðstöðu Karatefélags Reykjavíkur í kjallara Laugardalslaugar.
Það verður líf og fjör á námskeiðum félagsins enda verður:
- Farið í sund
- Farið í Húsdýragarðinn
- Úti- og innileikir
- Æft karate
- Fremsta karatefólk landsins í hópi kennara og aðstoðarmanna
Eins og áður þá eru þessi námskeið með skemmtilegustu sumarnámskeiðum sem í boði eru.
Námskeiðið er frá kl. 9 til kl. 14 en húsið opnar 8:30.
ATH. Fullt var á öllum námskeiðum í fyrra enda takmarkaður fjöldi þátttakanda.
Skráning er að finna hér