Gasshuku – Ísland– 12. og 13. september.
Dagana 12.-13. september næstkomandi stendur Karatefélag Reykjavíkur ásamt Ernie Molyneux og Jorge Monteiro fyrir tveggja daga gasshuku eða æfingabúðum.
Ljóst er að hér er á ferð mikill fengur fyrir íslenskt karatefólk að fá Sensei Ernie Molyneux, 9. dan og Sensei Jorge Monteiro, 9. dan, til Íslands þar sem þeir munu leiða æfingabúðir í Okinawan Goju-Ryu karate.
Ernie Molyneux er einn reynslumesti kennari IOGKF (International Okinawan Goju-Ryu Karate-Do Federation) og hefur helgað sig karate frá árinu 1972. Hann hefur áratuga reynslu af bæði keppni og kennslu og hefur kennt karate víða um heim.
Jorge Monteiro hóf sína karateiðkun árið 1974 og hefur helgað sig Goju-Ryu karate frá árinu 1977. Árið 2024 var hann útnefndur World Vice-Chief Instructor hjá alþjóðasamtökum IOGKF. Jorge er þekktur fyrir mikla tæknilega þekkingu og áratuga starf við uppbyggingu og kennslu hefðbundins Okinawan Goju-Ryu karate.
Æfingabúðirnar eru einstakt tækifæri til að æfa undir leiðsögn tveggja af virtustu og reyndustu kennurum IOGKF í heiminum og sækja þekkingu beint í eina sterkustu kennsluhefð Okinawan Goju-Ryu karate.
Helgarnámskeið sem samanstendur af þremur æfingum hjá þessum miklu meisturum kostar 19.900 kr.
Ath. hægt er að skipta greiðslun niður í þrennt
Skráning á námskeiðið er að finna á skráningasíðu félagsins :
Dagskrá
Laugardagur 12. september
10:00 – 11:15 æfing
Hlé
11:30 – 12:45 æfing
Hádegishlé
14:00 – 15:15 – fyrir þá sem vilja meira.
Sunnudagur 13. september
10:00 – 11:15 æfing
Hlé
11:30 – 13:00