Karatefélag Reykjavíkur

Haustönn hjá KFR – skráning er hafin

Haustönn 2026 hjá Karatefélagi Reykjavíkur hefst formlega mánudaginn 31. ágúst nk.
Vakin er séstök athygli á byrjendanámskeiði fyrir börn og fullorðna er á sama tíma en og gefst því foreldrum að að æfa á sama.

Eins og síðustu ár hefur félagið þurft að takmarka aðsókn í byrjendahóp barna en fullt hefur verið á byrjendanámskeið félagsins síðustu ár og hafa áhugasöm börn verið sett á biðlista. Við hvetjum því foreldra að huga að skráningu hið allra fyrsta. Að sjálfsögðu fá öll börn sem æfðu í haust hjá félaginu pláss á vorönninni.

Æfingar þeirra sem eru að feta sín fyrstu karatespor hjá félaginu eru tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga, frá kl. 17:15 – 18:00. Hefur þessi skemmtilega þjónusta mælst vel fyrir og hafa margir foreldrar nýtt sér byrjendanámskeið fyrir fullorðna til að taka sjálf sín fyrstu skref í karate á sama tíma og börnin. 

Æfingar hjá framhaldshópi barna og unglingum er eins og áður frá kl. 17-18, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, ásamt aukaæfingum alla þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 18:00 – 19:00 fyrir þau sem vilja ná lengra.

Æfingar hjá framhaldshópi fullorðinna er frá kl. 18-19:15, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.

KFR veitir 20% fjölskylduafslátt af æfingagjöldum


Hér er hægt að skoða æfingatöflu KFR

Skráning á haustönn er á Sportabler