Meistaramót barna í Kata 2003
Meistaramót barna í Kata 2003 fór fram 1. febrúar í Íþróttahúsi Hauka, Ásvöllum, og hófst kl. 9.30.
Fjöldi keppenda var um 300 og er þetta lang fjölmennasta karatemót ársins. Meistaramót barna í kata er haldið í fyrsta sinn í ár en var áður partur af Unglingameistaramótinu. Átta karatefélög og karatedeildir sendu keppendur á mótið. Aldur keppenda á Meistaramóti barna er 6-12 ára (f. 1990-1996). Eins og sjá má á keppendafjölda er karatestarf í miklum blóma um þessar mundir!
Að þessu sinni var reynt nýtt fyrirkomulag og var mótinu skipt í tvo hluta. Í fyrri hlutanum voru yfir 100 börn en í þeim seinni um 200. Keppt var á 4 völlum samtímis. Keppni 8 ára og yngri hófst kl. 9:30 og fyrri úrslit voru kl. 12:00. Keppni 9-12 ára hófst svo kl. 12:30 og seinni úrslit voru kl. 15:30. Margar góðar Kata mátti sjá og lögðu börnin sig öll fram í keppninni.
Sérstakar þakkir fá keppendur, dómarar, starfsmenn, liðsstjórar og foreldrar sem lögðust á eitt um að gera þetta að skemmtilegu móti og Karateíþróttinni til framdráttar.
Mótsstjóri var Gunnlaugur Sigurðsson, Haukum og yfirdómari Ólafur Helgi Hreinsson. Fá þeir sérstakar þakkir frá mótanefnd KAÍ.
Karatefélag Reykjavíkur stóð uppi sem Barnameistari félaga í Kata árið 2003 með 21 stig en gefin eru stig fyrir 1 – 3 sæti, 3, 2, og 1 stig en vægi hópkata er þrefalt. Nöfn allra sem unnu til verðlauna má lesa hér fyrir neðan auk skiptingar verðlauna og heildarstiga félaga.
Úrslit urðu: | ||
Kata barna fædd 1996 og síðar. (11 keppendur) | ||
1. Katrín Hrefna Karlsdóttir | Víkingur | |
2. Davíð Þórir Reynaldsson | Víkingur | |
3. Ásthildur Margrét Jónsdóttir | Víkingur | |
Kata barna fædd 1995. (47 keppendur) | ||
1. Sigurður Bessi Arnarsson | 25,1 stig | Karatefélag Reykjavíkur |
2. Jovan Kujundzik | 25,1 stig | Karatefélag Reykjavíkur |
3. Vésteinn Þrymur Ólafsson | 24,8 stig | Karatefélag Reykjavíkur |
Kata barna fædd 1994. (48 keppendur) | ||
1. Breki Bjarnason | 22,2 stig | Þórshamar |
2. Guðni Hrafn Pétursson | 22,0 stig | Fylkir |
3. Elías Guðni Guðnasson | 22,0 stig | Fylkir |
Kata barna fædd 1993. (60 keppendur) | ||
1. Kristófer Ísak Karlsson | 25,5 stig | Karatefélag Reykjavíkur |
2. Haukur Þ. Sveinbjarnarson | 25,4 stig | Fylkir |
3. Kristján Harðarsson | 24,2 stig | Karatefélag Reykjavíkur |
Kata barna fædd 1992. (52 keppendur) | ||
1. Brandon Wu | 25,1 stig | Víkingur |
2. Aron Þór Ragnarsson | 24,7 stig | Þórshamar |
3. Páll Cecil Sævarsson | 24,6 stig | Afturelding |
Kata barna fædd 1991. (47 keppendur) | ||
1. Eggert Kári Karlsson | 22,9 stig | Karatefélag Reykjavíkur |
2. Goði Ómarsson | 22,1 stig | Karatefélag Reykjavíkur |
3. Aldís Tómasdóttir | 21,9 stig | Karatefélag Reykjavíkur |
Kata barna fædd 1990. (31 keppandi) | ||
1. Jón Ingi Seljeseth | 22,8 stig | Þórshamar |
2. Steinar Logi Helgason | 22,3 stig | Þórshamar |
3. Þorlákur Björnsson | 22,2 stig | Þórshamar |
Hópkata barna fædd 1994 og síðar. (14 lið) | ||
1. Guðmundur Árni Guðmundsson, Jón Þór Ragnarsson, Kristján Helgi Carrasco | 24,1 stig | Víkingur |
2. Hrafn Hlíðdal, Guðni Hrafn Pétursson, Elías Guðni Guðnason | 24,1 stig | Fylkir |
3. Jónas Samsudin, Jovan Kujundzik, Vésteinn Þrymur Ólafsson | 23,7 stig | Karatefélag Reykjavíkur |
Hópkata barna fædd 1992 og 1993. (24 lið) | ||
1. Haukur Þ. Sveinbjarnarson, Egill Birnir Björnsson, Andri Már Magnason | 25,5 stig | Fylkir |
2. Páll Cecil Gunnlaugsson, Telma Rut Frímannsdóttir, Gyrðir Viktorsson | 25,0 stig | Afturelding |
3. Arianit Albertsson, Kristján Harðarson, Kristófer Ísak Karlsson | 24,8 stig | Karatefélag Reykjavíkur |
Hópkata barna fædd 1990 og 1991. (21 lið) | ||
1. Ingvi Seljeseth, Steinar Logi Helgason, Þorlákur Björnsson | 22,7 stig | Þórshamar |
2. Aldís Tómasdóttir, Eggert Kári Karlsson, Ingólfur Urban Þórsson | 22,5 stig | Karatefélag Reykjavíkur |
3. Guðmundur Heimisson, Sigurður Hafsteinn Jónsson, Goði Ómarsson | 22,0 stig | Karatefélag Reykjavíkur |
Verðlaun félaga: | ||||
Gull | Silfur | Brons | Stig | |
Karatefélag Reykjavíkur | 3 | 3 | 6 | 21 |
Þórshamar | 3 | 2 | 1 | 14 |
Víkingur | 3 | 1 | 1 | 12 |
Fylkir | 1 | 3 | 1 | 10 |
Afturelding | 1 | 1 | 3 | |