Karatefélag Reykjavíkur

Haustæfingar hjá Karatefélagi Reykjavíkur

Haustönn hjá Karatefélagi Reykjavíkur hefst mánudaginn 2. september nk. Vakin er séstök athygli á byrjendanámskeiði fyrir börn og foreldra en síðustu ár hefur félagið boðið upp á að foreldrar geti æft á sama tíma og börnin þar sem byrjendahópur fullorðinna er á sama tíma.

Því miður hefur félagið þurft að takmarka aðsókn í byrjendahóp barna en fullt hefur verið á byrjendanámskeið félagsins síðustu misseri og hafa áhugasöm börn verið sett á biðlista. Við hvetjum því foreldra að huga að skráningu hið allra fyrsta.

Æfingar þeirra sem eru að feta sín fyrstu karatespor hjá félaginu eru tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga, frá kl. 17:15 – 18:00. Hefur þessi skemmtilega þjónusta mælst vel fyrir og hafa margir foreldrar nýtt sér byrjendanámskeið fyrir fullorðna til að taka sjálf sín fyrstu skref í karate á sama tíma og börnin. 

Æfingar hjá framhaldshópi barna og unglingum er frá kl. 17-18, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga

Æfingar hjá framhaldshópi fullorðinna er frá kl. 18-19:15, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga

KFR veitir 20% fjölskylduafslátt af æfingagjöldum

Hér er hægt að skoða æfingatöflu KFR

Skráning á haustönn er á Sportabler