Karatefélag Reykjavíkur

Byrjendanámskeið

Langar þig að prófa karate?  Mættu ókeypis í tvö skipti og skoðaðu málið.  
Byrjendaæfingar 17 ára og eldri eru á þriðjudögum og fimmudögum kl. 17:15 – 18:00 í kjallara Laugardalshallar. 

Byrjendur 10-7 kyu æfa tvisvar í viku undir stjórn reyndra þjálfara.

Við leggjum mikla áherslu markmið æfinganna miði að því að auka:

Sjálfstraust
Karate eykur oft sjálfstraust iðkenda.  Í karate er stefnt að raunhæfum markmiðum sem  nást með reglulegri ástundun.  Karate kennir einstaklingunum líka aga og meðvitund um eigin getu sem getur nýst þeim á öðrum sviðum í lífinu.

Sjálfsvörn
Byrjendur læra viðeigandi tækni miðað við getu til sjálfsvarnar. Einstaklingar sem læra karate vita að aldrei má beita tækninni sem þeir læra að óþörfu. Við trúum líka að hugurinn sé sterkasta vopnið þegar kemur að sjálfsvörn. Vitneskjan um að viðkomandi geti varið sig mun auka sjálfstraust og sjálfsvitund hans/hennar og þar með minnka líkur á að verða fyrir árás.

Líkamsrækt
Karate tekur mið af gerð mannslíkanans. Stórir vöðvahópar eru þjálfaðir til að auka kraft. Teygjanleiki og hraðir vöðvaþræðir eru æfðir fyrir hraða og snerpu. Með auknum æfingum munu byrjendur öðlast samhæfingu hugar og handa. Í byrjun er lögð áhersla á einfaldar grunnæfingar með tímanum er svo farið í flóknari tæknir og æfingar.  Allir geta æft karate óháð aldri eða líkamsgerð. Komdu á byrjendaæfingu í íþróttabuxum og bol og prófaðu sjálf/ur.  Karategalli og belti fylgir þegar fólk skráir sig í fyrsta skipti.