Karatefélag Reykjavíkur

Sumarnámskeið Karatefélags Reykjavíkur

Hin vinsælu sumarnámskeið Karatefélags Reykjavíkur eru fyrir börn á aldrinum 6-10 ára.

Á námskeiðinu fá börn að kynnast undirstöðuatriðum karateíþróttarinnar, jafnt innan dyra sem utan. 
Námskeiðin fara fram í aðstöðu Karatefélags Reykjavíkur í kjallara Laugardalslaugar. 
Það verður líf og fjör á námskeiðum félagsins enda verður:

  • Farið í sund
  • Farið í Húsdýragarðinn
  • Úti- og innileikir
  • Æft karate
  • Fremsta karatefólk landsins í hópi kennara og aðstoðarmanna

Eins og áður þá eru þessi námskeið með skemmtilegustu sumarnámskeiðum sem í boði eru. Einungis fjögur námskeið í boði en hægt að vera hálfan daginn frá kl. 09:00 – 12:00 eða 13:00 – 16:00 og eða allan daginn frá kl. 09:00 – 16:00.
ATH. Fullt var á öllum námskeiðum í fyrra enda takmarkaður fjöldi þátttakanda. 

Námskeið nr. 1 
Dagana 12. júní – 16. júní  

Námskeið nr. 2
Dagana 19. júní – 23. júní 

Námskeið nr. 3
Dagana 26. júní – 30. júní

Námskeið nr. 4
Dagana 14. ágúst – 18. ágúst

Skráning stendur yfir hjá Karatefélagi Reykjavíkur

Einnig er hægt að senda karatefélaginu póst á kfr@simnet.is