Vorönn 2026 hjá Karatefélagi Reykjavíkur hefst formlega mánudaginn 12. janúar nk.
Vakin er séstök athygli á byrjendanámskeiði fyrir börn og fullorðna er á sama tíma en og gefst því foreldrum að að æfa á sama.
Því miður hefur félagið þurft að takmarka aðsókn í byrjendahóp barna en fullt hefur verið á byrjendanámskeið félagsins síðustu ár og hafa áhugasöm börn verið sett á biðlista. Við hvetjum því foreldra að huga að skráningu hið allra fyrsta. Að sjálfsögðu fá öll börn sem æfðu í haust hjá félaginu pláss á vorönninni.
Æfingar þeirra sem eru að feta sín fyrstu karatespor hjá félaginu eru tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga, frá kl. 17:15 – 18:00. Hefur þessi skemmtilega þjónusta mælst vel fyrir og hafa margir foreldrar nýtt sér byrjendanámskeið fyrir fullorðna til að taka sjálf sín fyrstu skref í karate á sama tíma og börnin.
Æfingar hjá framhaldshópi barna og unglingum er frá kl. 17-18, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
Æfingar hjá framhaldshópi fullorðinna er frá kl. 18-19:15, mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
KFR veitir 20% fjölskylduafslátt af æfingagjöldum
Hér er hægt að skoða æfingatöflu KFR
Skráning á haustönn er á Sportabler