Karatefélag Reykjavíkur

ÍSLANDSMEISTARAMÓT Í KATA 2004.

ÍSLANDSMEISTARAMÓT Í KATA 2004.

Íslandsmeistaramótið í Kata 2004 var haldið laugardaginn 20. mars í Íþróttahúsi Hagaskóla kl. 10.00 – 13.00.
Keppt var í kata karla og kvenna og í liðakeppni í hópkata. Úrslit hófust kl. 12.30.
Keppt var á 2 völlum og er keppt með útsláttarformi með uppreisn.
29 keppendur mættu til leiks auk 8 hópkata liða. 14 í karlaflokki og 15 í kvennaflokki.
Sólveig Sigurðardóttir, Þórshamri, sigraði í kata kvenna. Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson, Karatefélagi Reykjavíkur, varði Íslandsmeistaratitilinn frá síðasta ári.
A-karlalið Þórshamars sigraði í hópkata karla og A-kvennalið Þórshamars í hópkata kvenna.
Aðaldómari var Ólafur Wallevik og honum til aðstoðar, Ásmundur Ísak Jónsson, Gretar Örn Halldórsson, Gunnlaugur Sigurðsson, Halldór Svavarsson, Ólafur Helgi Hreinsson, Matthías B. Matthíasson, Árni Þór Jónsson, Edda Lovísa Blöndal og Reinharð Reinharðsson.
Þórshamar fékk því 31 stig í stigakeppni félaga en Karatefélag Reykjavíkur 5.
 

Úrslit urðu:
Kata karla
1. Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson Karatefélag Reykjavíkur
2. Daníel Pétur Axelsson Þórshamar
3. Jón Ingi Þorvaldsson Þórshamar
4. Helgi Jóhannesson Þórshamar
Kata kvenna
1. Sólveig Sigurðardóttir Þórshamar
2. Auður Olga Skúladóttir Þórshamar
3. María Helga Guðmundsdóttir Þórshamar
4. Manúela Magnúsdóttir Karatefélag Reykjavíkur
Hópkata karla
1. Helgi Jóhannesson, Jón Ingi Þorvaldsson, Daníel Pétur Axelsson Þórshamar-A
2. Davíð Guðjónsson, Jón Einarsson, Tómas Lee Róbertsson Þórshamar-C
3. Arnar Guðnason, Atli Örn Hafsteinsson, Atli Steinn Guðmundsson Þórshamar-D
4. Brynjar Aðalsteinsson, Arnar Pétursson, Andri Bjartur Jakobsson Karatefélag Reykjavíkur
Hópkata kvenna
1. Sólveig Sigurðardóttir, Auður Olga Skúladóttir, Bylgja Guðmundsdóttir Þórshamar-A
2. Ingibjörg Helga Arnþórsdóttir, María Helga Guðmundsdóttir, Steinunn Axelsdóttir Þórshamar-C
3. Manúela Magnúsdóttir, María Tómasdóttir, Kristrún L.Júlíusdóttir Karatefélag Reykjavíkur
4. Ásta María Sverrisdóttir, Elín Elísabet Torfadóttir, Fríða Bogadóttir Þórshamar-B
Verðlaun félaga:
Gull Silfur Brons
Karatefélagið Þórshamar 3 4 3
Karatefélag Reykjavíkur 1 1
Heildarstig félaga:
Karatefélagið Þórshamar 31
Karatefélag Reykjavíkur 5

 

 .