Íslandsmeistaramótið í kata 2005
Íslandsmeistaramótið í kata fór fram í Smáranum, Kópavogi laugardaginn 2.apríl 2005. Þátttaka var meiri en á s.l. ári en tæplega 50 einstaklingar tóku þátt í mótinu. Í einstaklingsflokkum kepptu 21 karl og 14 konur. Fimm kvennalið og fjögur karlalið kepptu í hópkata. Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson, KFR, og Sólveig Sigurðardóttir, Þórshamri, vörðu Íslandsmeistaratitla sína frá síðasta ári. Í hópkata karla sigraði lið Breiðabliks sigurlið Þórshamars frá í fyrra en í hópkata kvenna varði lið Þórshamars titilinn frá í fyrra. Í sigurliði Breiðabliks var Helgi Jóhannesson en hann keppti með Þórshamarsliðinu í fyrra. Þórshamar varði einnig titilinn Meistari Félaga með flest stig á mótinu.
Aðaldómari var Ólafur Wallevik og honum til aðstoðar voru Halldór Svavarsson, Ólafur Helgi Hreinsson, Matthías B. Matthíasson, Árni Þór Jónsson, Eydís Líndal, Karl Sigurjónsson og Reinharð Reinharðsson.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Konur:
- Sólveig Sigurðardóttir, Þórshamri
- Auður Olga Skúladóttir, Þórshamri
- María Helga Guðmundsdóttir, Þórshamri
Karlar:
- Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson, KFR
- Daníel Pétur Axelsson, Þórshamri
- Helgi Jóhannesson, Breiðablik
Hópkata kvenna:
- Þórshamar B (Auður Olga Skúladóttir, María Helga Guðmundsdóttir og Sólveig Sigurðardóttir)
- Þórshamar A (Sólveig Krista Einarsdóttir, Hulda Axelsdóttir og Ragna Kjartansdóttir)
- Karatefélag Akraness (Ása Katrín Bjarnadóttir, Aðalheiður Rósa Harðardóttir og Dagný Björk Egilsdóttir)
Hópkata karla:
- Breiðablik (Helgi Jóhannesson, Magnús Kr. Eyjólfsson og Einar Hagen)
- Þórshamar A (Daníel Pétur Axelsson, Jón Viðar Arnþórsson og Jón Ingi Þorvaldsson)
- Þórshamar B (Tómas Lee Róbertsson, Margeir Stefánsson og Jón Ingi Bergsteinsson)
Verðlaun félaga: | ||||
Gull | Silfur | Brons | Stig | |
Karatefélagið Þórshamar | 2 | 4 | 2 | 24 |
Karatedeild Breiðabliks | 1 | 1 | 7 | |
Karatefélag Reykjavíkur | 1 | 3 | ||
Karatefélag Akraness | 1 | 2 |