Karatefélag Reykjavíkur

Meistaramót barna í Kata 2003

Meistaramót barna í Kata 2003

Meistaramót barna í Kata 2003 fór fram 1. febrúar í Íþróttahúsi Hauka, Ásvöllum, og hófst kl. 9.30.
Fjöldi keppenda var um 300 og er þetta lang fjölmennasta karatemót ársins. Meistaramót barna í kata er haldið í fyrsta sinn í ár en var áður partur af Unglingameistaramótinu. Átta karatefélög og karatedeildir sendu keppendur á mótið. Aldur keppenda á Meistaramóti barna er 6-12 ára (f. 1990-1996). Eins og sjá má á keppendafjölda er karatestarf í miklum blóma um þessar mundir!

Að þessu sinni var reynt nýtt fyrirkomulag og var mótinu skipt í tvo hluta. Í fyrri hlutanum voru yfir 100 börn en í þeim seinni um 200. Keppt var á 4 völlum samtímis. Keppni 8 ára og yngri hófst kl. 9:30 og fyrri úrslit voru kl. 12:00. Keppni 9-12 ára hófst svo kl. 12:30 og seinni úrslit voru kl. 15:30. Margar góðar Kata mátti sjá og lögðu börnin sig öll fram í keppninni.

Sérstakar þakkir fá keppendur, dómarar, starfsmenn, liðsstjórar og foreldrar sem lögðust á eitt um að gera þetta að skemmtilegu móti og Karateíþróttinni til framdráttar.
Mótsstjóri var Gunnlaugur Sigurðsson, Haukum og yfirdómari Ólafur Helgi Hreinsson. Fá þeir sérstakar þakkir frá mótanefnd KAÍ.

 

Karatefélag Reykjavíkur stóð uppi sem Barnameistari félaga í Kata árið 2003 með 21 stig en gefin eru stig fyrir 1 – 3 sæti, 3, 2, og 1 stig en vægi hópkata er þrefalt. Nöfn allra sem unnu til verðlauna má lesa hér fyrir neðan auk skiptingar verðlauna og heildarstiga félaga.

Úrslit urðu:
Kata barna fædd 1996 og síðar. (11 keppendur)
1. Katrín Hrefna Karlsdóttir Víkingur
2. Davíð Þórir Reynaldsson Víkingur
3. Ásthildur Margrét Jónsdóttir Víkingur
Kata barna fædd 1995. (47 keppendur)
1. Sigurður Bessi Arnarsson 25,1 stig Karatefélag Reykjavíkur
2. Jovan Kujundzik 25,1 stig Karatefélag Reykjavíkur
3. Vésteinn Þrymur Ólafsson 24,8 stig Karatefélag Reykjavíkur
Kata barna fædd 1994. (48 keppendur)
1. Breki Bjarnason 22,2 stig Þórshamar
2. Guðni Hrafn Pétursson 22,0 stig Fylkir
3. Elías Guðni Guðnasson 22,0 stig Fylkir
Kata barna fædd 1993. (60 keppendur)
1. Kristófer Ísak Karlsson 25,5 stig Karatefélag Reykjavíkur
2. Haukur Þ. Sveinbjarnarson 25,4 stig Fylkir
3. Kristján Harðarsson 24,2 stig Karatefélag Reykjavíkur
Kata barna fædd 1992. (52 keppendur)
1. Brandon Wu 25,1 stig Víkingur
2. Aron Þór Ragnarsson 24,7 stig Þórshamar
3. Páll Cecil Sævarsson 24,6 stig Afturelding
Kata barna fædd 1991. (47 keppendur)
1. Eggert Kári Karlsson 22,9 stig Karatefélag Reykjavíkur
2. Goði Ómarsson 22,1 stig Karatefélag Reykjavíkur
3. Aldís Tómasdóttir 21,9 stig Karatefélag Reykjavíkur
Kata barna fædd 1990. (31 keppandi)
1. Jón Ingi Seljeseth 22,8 stig Þórshamar
2. Steinar Logi Helgason 22,3 stig Þórshamar
3. Þorlákur Björnsson 22,2 stig Þórshamar
Hópkata barna fædd 1994 og síðar. (14 lið)
1. Guðmundur Árni Guðmundsson, Jón Þór Ragnarsson, Kristján Helgi Carrasco 24,1 stig Víkingur
2. Hrafn Hlíðdal, Guðni Hrafn Pétursson, Elías Guðni Guðnason 24,1 stig Fylkir
3. Jónas Samsudin, Jovan Kujundzik, Vésteinn Þrymur Ólafsson 23,7 stig Karatefélag Reykjavíkur
Hópkata barna fædd 1992 og 1993. (24 lið)
1. Haukur Þ. Sveinbjarnarson, Egill Birnir Björnsson, Andri Már Magnason 25,5 stig Fylkir
2. Páll Cecil Gunnlaugsson, Telma Rut Frímannsdóttir, Gyrðir Viktorsson 25,0 stig Afturelding
3. Arianit Albertsson, Kristján Harðarson, Kristófer Ísak Karlsson 24,8 stig Karatefélag Reykjavíkur
Hópkata barna fædd 1990 og 1991. (21 lið)
1. Ingvi Seljeseth, Steinar Logi Helgason, Þorlákur Björnsson 22,7 stig Þórshamar
2. Aldís Tómasdóttir, Eggert Kári Karlsson, Ingólfur Urban Þórsson 22,5 stig Karatefélag Reykjavíkur
3. Guðmundur Heimisson, Sigurður Hafsteinn Jónsson, Goði Ómarsson 22,0 stig Karatefélag Reykjavíkur
Verðlaun félaga:
Gull Silfur Brons Stig
Karatefélag Reykjavíkur 3 3 6 21
Þórshamar 3 2 1 14
Víkingur 3 1 1 12
Fylkir 1 3 1 10
Afturelding 1 1 3

.