Pressumót 1985
Fyrsta mót KAÍ var haldið 2. mars, eða tveimur dögum eftir stofnun sambandsins. Mótið var haldið í samvinnu við Samtök íþróttafréttaritara og kepptu landsliðið og pressuliðið í Íþróttahúsinu á Digranesi.
Góð stemming og spenna ríkti meðal hinna 300 áhorfenda í húsinu, því pressan stóð fyllilega í landsliðinu. Keppt var í 5 manna sveitum, þrjár umferðir. Landsliðið sigraði pressuliðið með 9 vinningum gegn 6 og fékk 56 stig gegn 46 stigum pressuliðsins.
Pressuliðinu stjórnaði Ævar Þorsteinsson en Ólafur Wallevik landsliðsþjálfari stjórnaði landsliðinu, en Atli Erlendsson var fyrirliði þess.
Í hléi sýndi Jónína Olesen kata og Ólafur Wallevik sjálfsvörn við fjöldaárás.
Í lok mótsins afhenti Sveinn Björnsson forseti ÍSÍ keppnismönnum minjagrip um keppnina.
Eins og þessi keppni sýndi og sannaði, þá eru geysilega efnilegir menn á leiðinni upp. Þess vegna ætti að viðhalda pressuliðsæfingum eins og landsliðsæfingum 2. – 3. í mánuði.
Ævar Þorsteinsson. Birtist í ársskýrslu KAÍ 1985..