Karatefélag Reykjavíkur

SUMARNÁMSKEIÐ KARATEFÉLAGS REYKJAVÍKUR

Námskeiðslýsing: 

Sumarnámskeið hjá Karatefélagi Reykjavíkur

Hin vinsælu sumarnámskeið Karatefélags Reykjavíkur eru fyrir börn á aldrinum 6-10 ára.

Á námskeiðinu fá börn að kynnast undirstöðuatriðum karateíþróttarinnar, jafnt innan dyra sem utan.
Námskeiðin fara fram í aðstöðu Karatefélags Reykjavíkur í kjallara Laugardalslaugar.
Það verður líf og fjör á námskeiðum félagsins enda verður:

  • Farið í sund
  • Farið í Húsdýragarðinn
  • Úti- og innileikir
  • Æft karate
  • Fremsta karatefólk landsins í hópi kennara og aðstoðarmanna

Eins og áður þá eru þessi námskeið með skemmtilegustu sumarnámskeiðum sem í boði eru. Einungis þrjú námskeið í boði en hægt að vera hálfan daginn frá kl. 09:00 – 12:00 eða 13:00 – 16:00 og eða allan daginn frá kl. 09:00 – 16:00.
ATH. Fullt var á öllum námskeiðum í fyrra enda takmarkaður fjöldi þátttakanda.

Síðast uppfært: 

SKRÁNING ER HÉR