Karatefélag Reykjavíkur

UNGLINGAMEISTARAMÓT Í KATA 2004

UNGLINGAMEISTARAMÓT Í KATA 2004

Unglingameistaramót í Kata 2004 fór fram laugardaginn 14. febrúar í íþróttahúsinu við Vesturgötu, Akranesi. Mótið hófst kl. 12.00 og lauk kl. 16.00. Um 90 keppendur tóku þátt í mótinu sem er nokkru meira en í fyrra. Nú var keppt í 4 aldursflokkum í kata og var tveim eldri flokkunum kynjaskipt, þannig að keppt var í 6 flokkum í kata og svo 3 flokkum í hópkata.
Yfirdómari á mótinu var Gunnlaugur Sigurðsson og yfirvallardómarar Ólafur Hreinsson og Jón Ingi Þorvaldsson. Auk þeirra voru 9 meðdómarar. Mótsstjóri var Indriði Jónsson.

Allir starfsmenn, dómarar, liðsstjórar, keppendur og síðast en ekki síst Karatefélag Akranes fá þakkir fyrir góða framkvæmd mótsins.

Karatefélagið Þórshamar stóð uppi með flest stig í lok mótsins og eru Unglingameistarar félaga í Kata 2004 en gefin eru stig fyrir 1 – 3 sæti, 3, 2, og 1 stig en tvöföld stig eru síðan veitt fyrir hópkata.

Nöfn allra sem unnu til verðlauna má lesa hér fyrir neðan auk skiptingar verðlauna og heildarstiga félaga.

Úrslit urðu:
1. Táningar fæddir 1990. (36 keppendur)
1. Jón Ingvi Seljeseth Þórshamar
2. Steinar Logi Helgason Þórshamar
3. Sigurður Hafsteinn Jónsson Karatefélag Reykjavíkur
2. Táningar fæddir 1989. (18 keppendur)
1. Guðbjartur Ísak Ásgeirsson Haukar
2. Arnmundur Ernst Björnsson Karatefélag Reykjavíkur
3. Lilja Hlín Pétursdóttir Haukar
3. Piltar fæddir 1987 og 1988. (15 keppendur)
1. Andri Bjartur Jakobsson Karartefélag Reykjavíkur
2. Tómas Lee Róbertsson Þórshamar
3. Arnar Pétursson Karatefélag Reykjavíkur
4. Stúlkur fæddar 1987 og 1988. (6 keppendur)
1. María Helga Guðmundsdóttir Þórshamar
2. Ingibjörg Helga Arnþórsdóttir Þórshamar
3. Steinunn Ósk Axelsdóttir Þórshamar
5. Piltar fæddir 1983 – 1986. (6 keppendur)
1. Anton Kaldal Ágústsson Karatefélag Reykjavíkur
2. Brynjar Aðalsteinsson Karatefélag Reykjavíkur
3. Margeir Stefánsson Þórshamar
6. Stúlkur fæddar 1983 – 1986. (6 keppendur)
1. Sólveig Sigurðardóttir Þórshamar
2. Fríða Bogadóttir Þórshamar
3. Auður Olga Skúladóttir Þórshamar
7. Hópkata táningar fæddir 1989 – 1990. (8 lið)
1. Guðbjartur, Lilja, Kristján Haukar
2. Hans, Hlynur, Steinar Breiðablik
3. Una, Guðrún, Ása Katrín Akraness
8. Hóptata unglinga fæddir 1986 – 1988. (6 lið)
1. Pétur, Siguróli, Anton Karatefélag Reykjavíkur
2. Ingibjörg, María, Steinunn Þórshamar
3. Arnmundur, Andri, Arnar Karatefélag Reykjavíkur
9. Hópkata juniora fæddir 1983 – 1985. (2 lið)
1. Auður, Margeir, Sólveig Þórshamar
2. Brynjar, Manúela, María Karatefélag Reykjavíkur
Verðlaun félaga:
Gull Silfur Brons Stig
Þórshamar 4 5 3 30
Karatefélag Reykjavíkur 3 3 3 24
Haukar 2 0 1 10
Breiðablik 0 1 0 4
Akranes 0 0 1 2

 .