Karatefélag Reykjavíkur

Unglingar

Karatefélag Reykjavíkur stendur fyrir öflugu unglingastarfi fyrir unglinga á aldrinum 12-18 ára.
Við leggjum mikla áherslu markmið æfinganna miði að því að auka:

Sjálfstraust
Karate eykur oft sjálfstraust unglinga.  Í karate er stefnt að raunhæfum markmiðum sem nást með reglulegri ástundun.   Karate kennir því einstaklingunum aga og meðvitund um eigin getu sem getur nýst þeim á öðrum sviðum í lífinu.

Sjálfsvörn
Lögð er áhersla á viðeigandi tækni miðað við aldur til sjálfsvarnar. Unglingar sem læra karate vita að aldrei má beita tækninni sem þau læra að óþörfu. Við trúum líka að hugurinn sé sterkasta vopnið þegar kemur að sjálfsvörn. Vitneskjan um að einstaklingurinn geti varið sig mun auka sjálfstraust og sjálfsvitund og þar með minnka líkur á að hann verði fyrir áreiti.

Líkamsrækt
Karate tekur mið af gerð mannslíkanans og eru æfingarnar miðaðar  við þroska og getu unglingana. Stórir vöðvahópar eru þjálfaðir til að auka kraft. Teygjanleiki og hraðir vöðvaþræðir eru æfðir fyrir hraða og snerpu. Með auknum æfingum munu iðkendur öðlast samhæfingu hugar og handa.