Karatefélag Reykjavíkur

Haustönn 2022 – Skráning og námskeið

Haustönn hjá Karatefélagi Reykjavíkur byrjar mánudaginn 22. ágúst nk. Vakin er séstök athygli á byrjendanámskeiði fyrir börn og foreldra en síðustu ár hefur félagið boðið upp á að foreldrar geti æft á sama tíma og börnin þar sem byrjendahópur fullorðinna er á sama tíma.

Æfingar þeirra sem eru að feta sín fyrstu karatespor hjá KFR eru tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga, frá kl. 17:15 – 18:00. Hefur þessi skemmtilega þjónusta mælst vel fyrir og hafa margir foreldrar nýtt sér byrjendanámskeið fyrir fullorðna til að taka sjálf sín fyrstu skref í karate á sama tíma og börnin. Athygli er vakin á því að KFR veitir 20% fjölskylduafslátt af æfingagjöldum

Skráning verðskrá er að finna hér